Úrskurðarnefnd um upplýsingamál

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál er starfrækt á grundvelli V. kafla upplýsingalaga nr. 140/2012 til að leysa úr ágreiningsmálum um aðgang almennings að upplýsingum hjá stjórnvöldum. Nefndin er sjálfstæð og óháð stjórnsýslunefnd sem skipað er til hliðar við hið almenna stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga. Valdsvið nefndarinnar nær til allrar stjórnsýslu hins opinbera án tillits til á hvaða stjórnsýslustigi ákvörðun er tekin. Aðili þarf því ekki að tæma aðrar kæruleiðir innan stjórnsýslunnar áður en til hennar er leitað. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir og verður ekki skotið annað innan stjórnsýslunnar. Þeir hafa því jafnframt fordæmisgildi fyrir önnur stjórnvöld og stuðla þannig að auknu samræmi í framkvæmd upplýsingalaganna.

Sjá nánar um kæruheimild og verklagsreglur nefndarinnar.

Skipan úrskurðarnefndar

Samkvæmt 21. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 skipar forsætisráðherra þrjá menn í úrskurðarnefnd um upplýsingamál til fjögurra ára í senn og jafnmarga til vara. Tveir nefndarmenn og varamenn þeirra skulu uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara. Skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar en hinn varaformaður. Nefndarmenn mega ekki vera fastráðnir starfsmenn í Stjórnarráði Íslands. Sjá skipan úrskurðarnefndar.

Nefndin er sjálfstæð í störfum sínum og óháð öðrum stjórnvöldum. Nefndin nýtur þó ritara og skrifstofuþjónustu úr forsætisráðuneytinu og má beina kærum til nefndarinnar á netfangið [email protected]. Einnig er unnt að senda kæru til nefndarinnar með því að fylla út rafrænt eyðublað á vef Stjórnarráðsins, mínar síður (sjá leiðbeiningar um notkun á mínum síðum).

Ritari nefndarinnar er Egill Pétursson.

Hér fyrir neðan eru allir úrskurðir nefndarinnar. Á annarri síðu er hægt að nota fullkomnari leit sem tekur t.d. tillit til beygingar orða og þar er einnig hægt að leita innan ákveðins árs.

 Sýni 1001-1050 af 1406 niðurstöðum
Kærð var sú ákvörðun mennta- og menningarmálaráðuneytisins að synja um aðgang að upplýsingum um samskiptaerfiðleika í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins og sveinsprófsnefndar í rafgreinum að synja um afhendingu 21 prófverkefnis. Ljósrit. Aðgangur veittur.

Kærð var sú ákvörðun Sorpu bs. að synja um aðgang að gögnum sem vörðuðu breytingu á stofnsamþykkt byggðasamlagsins árið 2007. Gildissvið upplýsingalaga. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun forseta Íslands að synja um aðgang að undirskriftalista sem afhentur var forsetanum til þess að hvetja hann til að undirrita ekki lög nr. 13/2011 um svonefnda Icesave-samninga. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.
Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að skýrslu sem gefin var fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 22. október 2009. Þagnarskylda. Synjun staðfest.

Kærð var sú ákvörðun Strætó bs. að synja um aðgang að gögnum er urðu til í tengslum við útboð kærða og gögnum er vörðuðu síðari samskipti kærða við Hagvagna hf. eftir að samþykkt var að ganga að tilboði félagsins. Gildissvið upplýsingalaga. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun forseta Íslands að synja um aðgang að bréfi forseta til forsætisráðherra, dags. 13. júlí 2010. Skjöl tekin saman fyrir fundi ríkisráðs. Aðgangur veittur.

Kærð var sú ákvörðun forseta Íslands að synja um aðgang að bréfi forseta til forsætisráðherra, dags. 13. júlí 2010. Skjöl tekin saman fyrir fundi ríkisráðs. Aðgangur veittur.

Kærð var sú ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Suðurlands að synja um afhendingu afrita af öllum gildandi samningum stofnunarinnar um sértæka heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega voru tilgreindir samningar stofnunarinnar við sveitarfélögin Árborg og Hveragerðisbæ. Tilgreining máls eða gagna í máli. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Aðgangur veittur að hluta, frávísun.

Kærð var sú ákvörðun landskjörstjórnar að synja um aðgang að gögnum um niðurstöðu talningar atkvæða í kosningum til stjórnlagaþings. Gildissvið upplýsingalaga.
Frávísun.

Kærð var afgreiðsla ríkislögmanns á beiðni um gögn um bann Fjármálaeftirlitsins við viðskiptum með hlutabréf í Glitni banka þann 6. október 2008. Kærufrestur. Kæruleiðbeiningar.
Frávísun.

Kærð var sú ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins að synja um afrit af leyfum til veiða á háhyrningum frá árinu 1983 og tengdum gögnum. Tilgreining máls eða gagna í máli.  Frávísun.
Kærð var sú ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Austurlands að synja um afhendingu afrita af öllum gildandi samningum stofnunarinnar um sértæka heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega var tilgreindur samningur stofnunarinnar við Alcoa Fjarðarál sf. Tilgreining máls eða gagna í máli. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta, frávísun.
Kærð var sú ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Vesturlands að synja um afhendingu afrita af öllum gildandi samningum stofnunarinnar um sértæka heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega var tilgreindur samningur stofnunarinnar við Norðurál. Tilgreining máls eða gagna í máli. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta, frávísun.

Kærð var sú ákvörðun heilbrigðisráðuneytisins að synja um aðgang að samningi við GlaxoSmithKline ehf. um kaup á bóluefni við svínaflensu o.fl. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

Farið fram á endurupptöku máls nr. A-377/2011. Beiðni um endurupptöku máls. Endurupptöku hafnað.

Kærð var sú ákvörðun utanríkisráðuneytisins að synja um aðgang að gögnum sem orðið hefðu til eftir að kærandi sendi tiltekna kvörtun til Eftirlitsstofnunar Fríverslunarsamtaka Evrópu og vörðuðu það málefni sem kvörtunin beindist að. Aðili máls. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun forsætisráðuneytisins að synja um afhendingu bréfa forseta Íslands til forsætisráðherra, dags. 29. júní og 13. júlí 2010. Gögn í vörslum stjórnvalds. Aðgangur veittur.

Kærð var sú ákvörðun Orkuveitu Reykjavíkur að synja um aðgang að gögnum er varða kaup Magma Energy Sweden AB á hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku hf. Gildissvið upplýsingalaga. Afmörkun kæruefnis. Gildissvið laga um upplýsingarétt um umhverfismál.
Frávísun.
Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um kaup lífeyrissjóða á íbúðabréfum í eigu ríkissjóðs. Fyrirliggjandi gögn. Vinnuskjöl.
Synjað um aðgang.
Kærð var sú afgreiðsla Fjölbrautaskólans í Ármúla að synja um aðgang að gömlum prófum nema greiddar væru 500 kr. fyrir ljósrit af hverju prófi. Gjaldtaka fyrir ljósrit. Aðgangur veittur skv. skilyrðum gjaldskrár nr. 306/2009.

Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að synja um aðgang að svörum fjögurra fjármálafyrirtækja við fyrirspurn stofnunarinnar. Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila.
Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun Blönduósbæjar að synja um afhendingu afrits af ráðningasamningum sveitarfélagsins við sviðsstjóra tæknideildar, skólastjóra grunnskóla, fjármálastjóra, bæjartæknifræðing, leikskólastjóra og bæjarstjóra sveitarfélagsins. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Ljósrit. Aðgangur veittur.
Kærð var sú ákvörðun umboðsmanns Alþingis að synja um afhendingu korts af deiliskipulagssvæði sem kvörtun kæranda til umboðsmanns Alþingis laut að. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.

Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að synja um fullan aðgang að skýrslu dagsettri 2. nóvember sem nefnist: „Sérstök athugun, að beiðni stjórnar Fjármálaeftirlitsins, á atriðum er varða hæfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins.“ Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun Háskóla Íslands að synja um aðgang að listum yfir útreiknuð rannsóknastig háskólakennara við skólann fyrir árin 2001-2009. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Frávísun.
Kærð var sú ákvörðun Borgarskjalasafns Reykjavíkur að synja kæranda um aðgang að ýmsum gögnum um látinn föður sinn. Aðili máls. Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.
Kærð var sú ákvörðun Barnaverndarstofu að synja um aðgang að gögnum er varða umsókn barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar um meðferð fyrir dóttur kæranda á meðferðarheimilinu A. Gildissvið upplýsingalaga. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.
Kærð var sú ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins að synja um aðgang að minnisblaði um viðbrögð við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna nr. 1306/2004 frá 24. október 2007. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli. Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun efnahags- og viðskiptaráðuneytisins að synja um aðgang að drögum að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um innistæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98/1999. Mikilvægir almannahagsmunir vegna fyrirhugaðra ráðstafana eða prófa á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur.

Farið var fram á það við úrskurðarnefnd um upplýsingamál að réttaráhrifum úrskurðar nefndarinnar nr. A-363/2011 yrði frestað. Frestun réttaráhrifa hafnað.

Kærð var sú ákvörðun Fornleifaverndar ríkisins að synja um aðgang að úttekt á kostnaði af viðhaldi Stangar í Þjórsárdal. Vinnuskjöl. Synjun staðfest.

Kærður var dráttur og synjun Samkeppniseftirlitsins á beiðni um aðgang upplýsingum um rannsókn eftirlitsins á meintu ólögmætu samráði milli Hátækni ehf. og Tæknivara ehf./Skipta hf. á heildsölumarkaði fyrir farsíma.  Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Synjun staðfest.
Kærð var sú ákvörðun iðnaðarráðuneytisins að synja um afhendingu bréfs forstjóra Magma Energy til iðnaðarráðherra í heild sinni. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun iðnaðarráðuneytisins að synja um afhendingu bréfs forstjóra Magma Energy til iðnaðarráðherra í heild sinni. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun Landvirkjunar að synja um aðgang að gögnum um samskipti fyrirtækisins við Magma Energy, Geysi Green Energy, HS Orku o.fl. Gildissvið laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Fyrirliggjandi gögn.Frávísun.

Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um beiðni Magma Energy Sweden AB um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál, fjölda veittra undanþága frá því reglurnar tóku gildi og afrit af ákvörðunum þar sem fallist var á beiðni um undanþágu. Þagnarskylda. Aðgangur veittur að hluta.
Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um beiðni Magma Energy Sweden AB um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál, fjölda veittra undanþága frá því reglurnar tóku gildi og afrit af ákvörðunum þar sem fallist var á beiðni um undanþágu. Þagnarskylda. Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um beiðni Magma Energy Sweden AB um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál í tengslum við kaup á hlutabréfum Geysis Green Energy í HS Orku. Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila.

Synjun staðfest.

Kærður var dráttur og synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um afrit af þremur bréfum til Íslandsbanka hf., NBI hf. og Nýja Kaupþings banka hf. sem vörðuðu hæfi starfsmanna bankanna. Þagnarskylda. Einkamálefni einstaklinga.

Synjun staðfest.

Kærð var sú ákvörðun sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps að synja um aðgang að bréfi sem sent var sveitarstjórninni og varðaði jörð kæranda í hreppnum. Kæruheimild. Aðili máls.

Aðgangur veittur, frávísun að hluta.

Kærð var sú ákvörðun Fiskistofu að synja um aðgang að upplýsingum um einstakar landanir erlendra skipa á uppsjávarfiski á Íslandi á árinu 2010 ásamt upplýsingum um hvað greitt var fyrir aflann úr hverri löndun, sundurliðað eftir því til hvers konar vinnslu aflinn fór og hver kaupandi aflans var í hvert sinn. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Þagnarskylda.Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að synja um afhendingu gagna um aðdraganda þess að Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki hf. var færður undir skilanefnd. Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja.Aðgangur veittur að hluta.

Kærð var sú ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins að synja um aðgang að tveimur minnisblöðum ráðuneytisins um jörðina [A] og [B] í Suður-Þingeyjarsýslu. Vinnuskjöl.

Synjun staðfest.

  Kærð var ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar um synjun á beiðni um aðgang að athugasemdum sem bárust sveitarfélaginu eftir forstigskynningu á deiliskipulagstillögu og samantekt athugasemda sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar. Stjórnvaldsákvörðun. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum.

Frávísun.

Kærð var ákvörðun Seltjarnarnesbæjar um synjun á beiðni um aðgang að samkomulagi milli Seltjarnarnesbæjar og Íslenskra aðalverktaka hf. um skipti hluta af svokallaðri „Lýsislóð“ og lóðarhluta við Hrólfsskálamel ásamt viðaukum og fylgiskjölum. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila.

Aðgangur veittur.

Kærð var sú ákvörðun Íslandsstofu að synja um aðgang að gögnum um ráðningu framkvæmdastjóra Íslandsstofu. Gildissvið upplýsingalaga. Umsóknir um störf hjá ríki eða sveitarfélögum og gögn sem þær varða. Aðgangur veittur að upplýsingum um nöfn, heimilisföng og starfsheiti umsækjenda.

 Kærð var sú ákvörðun matsnefndar samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði nr. 61/2006 að synja um afhendingu sundurliðaðra útreikningsforsendna hverrar jarðar í veiðifélagi sem matsnefndin notaði við arðskrármat sitt. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum.

Frávísun.

 Kærður var dráttur á afgreiðslu Þjóðskrár Íslands á beiðni um afhendingu upplýsinga og afrita gagna sem leiddu til ákvörðunar um breytta skráningu á fasteignamati tveggja eignarhluta kæranda. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum.

Frávísun.

Kærð var sú ákvörðun Biskupsstofu að synja um aðgang að bréfi X til Kirkjuráðs. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.