Ársskýrsla ríkisfyrirtækja 2024
Í skýrslu þessari er greint frá og birtar upplýsingar um ríkisfyrirtæki sem eru flokkuð í A3-, B- og C-hluta ríkissjóðs. Íslenska ríkið átti alfarið eða veigamikinn eignarhlut í 45 félögum árið 2024 með mismunandi starfsemi og markmið. Ríkisfélögin eru að langmestu leyti hlutafélög, opinber hlutafélög og einkahlutafélög, en einnig stofnanir eða sjóðir með ákveðið þjónustuhlutverk. Við umfjöllun um ríkisfélögin eru hér notuð orðin félög og fyrirtæki óháð því hvaða form er á rekstri þessara aðila.
Ársskýrsla ríkisfyrirtækja 2024