Ársskýrsla ríkisfyrirtækja 2025
Í skýrslu þessari er greint frá og birtar upplýsingar um ríkisfyrirtæki sem eru flokkuð í A3-, B- og C-hluta ríkissjóðs. Íslenska ríkið átti alfarið eða veigamikinn eignarhlut í 45 félögum árið 2025, með ólíka starfsemi og markmið. Fyrirtækin eru flest hlutafélög, opinber hlutafélög og einkahlutafélög, en einnig stofnanir eða sjóðir með ákveðið þjónustuhlutverk. Við umfjöllun um ríkisfélögin eru hér notuð orðin félög og fyrirtæki óháð því hvaða form er á rekstri þessara aðila.
Ársskýrsla ríkisfyrirtækja 2025