Ávarp ráðherra

Ávarp Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra

Árið 2025 var tveimur viðaukum við eigandastefnu ríkisins bætt við, Viðauki 1, reglur um val og hæfniskröfur stjórna félaga í eigu ríkisins, og Viðauki 3, viðmið um arðsemi, fjármagnsskipan og arðgreiðslur fyrirtækja í eigu ríkisins. Það nýja verklag við val á einstaklingum til stjórnarsetu, sem tekið var upp í fyrra, hefur fest sig í sessi og reynst vel. Þær stjórnir sem nú starfa hafa sýnt að vandað og gagnsætt valferli skilar sér í sterkri og ábyrgri stjórnun. Ég vil þakka þeim fjölmörgu sem áfram gefa kost á sér til þessara mikilvægu verka, og treysti þeim vel til að hafa hag fyrirtækjanna, eigandans og almennings að leiðarljósi. Varðandi Viðauka 3, þá er eðlilegt og sjálfsagt að ríkið geri sanngjarna kröfu um arðsemi á því mikla fjármagni sem bundið er í rekstri og eignum þessara fyrirtækja. Kröfunni um að fyrirtækin greiði eiganda sínum arð verður fylgt fast eftir. Með skýrum árangursmælingum, reglubundinni endurskoðun og góðri stjórnun getum við tryggt að ríkisfyrirtæki þjóni íslenska samfélaginu sem best. Það er skylda okkar gagnvart skattgreiðendum að krefjast þess besta af þessum fyrirtækjum. Í ársskýrslunni hefur nú verið birt samantekt yfir markmið fyrirtækjanna um arðgreiðslur, fjármagnsskipan og arðsemi.

Ríkisfyrirtæki verða að sýna fram á að þau skapi raunverulegt virði fyrir samfélagið — hvort sem það er með skilvirkri þjónustu, hagstæðu verði eða rekstri nauðsynlegra innviða. Með öðrum orðum að þau fylli skarð sem önnur fyrirtæki á markaði ráða ekki við. Eðli málsins samkvæmt hafa ríkisfyrirtæki sterka stöðu og þar með mikið vald sem þarf að fara varlega með. Þau verða að sýna ráðdeild og hófsemi. Gæta þarf þess að teygja sig ekki lengra í rekstri en nauðsynlegt er og raska ekki þeim samkeppnismarkaði sem þau eiga snertifleti við. Frelsið til að starfa og keppa á frjálsum markaði er grundvallargildi, og ríkisfyrirtæki mega ekki hindra eða raska þeirri samkeppni með óeðlilegri háttsemi.

Stærsta einstaka breytingin á eignasafni ríkissjóðs árið 2025 var salan á Íslandsbanka. Eftirstandandi 45,2% eignarhlutur ríkissjóðs í Íslandsbanka seldist í markaðssettu útboði fyrir tæplega 91 ma.kr.

Í nóvember var hélt ráðuneytið ársfund ríkisfyrirtækja fyrir stjórnendur og stjórnarfólk. Þemað 2025 var arðsemi, fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnur en meðal annars var nýr viðauki þar að lútandi kynntur og ræddur.

Markmið ríkisins með eignarhaldi á fyrirtækjum þarf að vera skýrt og vel rökstutt. Þau eru sett á fót fyrir fjármuni almennings og reksturinn verður að standast ströngustu kröfur um gagnsæi, ábyrgð og árangur.