Viðmið um arðsemi, fjármagnsskipan og arðgreiðslur
Nýr viðauki við eigandastefnu varðandi arðsemi, fjármagnsskipan og arðgreiðslur ríkisfyrirtækja var birtur haustið 2025. Samkvæmt honum eiga stjórnir ríkisfyrirtækja að setja sér stefnur eða viðmið hvað varðar ofangreind atriði. Vel skilgreind viðmið um arðsemi, fjármagnsskipan og arðgreiðslur eru hluti af góðum stjórnarháttum fyrirtækja á markaði.
Hér fylgir stutt samantekt yfir þær stefnur sem fyrirtækin hafa sett sér og eru í gildi í júlí 2026. Stefnur sem þessar þurfa á reglulegri endurskoðun að halda en gefa mynd af horfum eins og þær eru í dag.
Vert er að taka fram að það er stjórn fyrirtækis sem leggur fram tillögu að arðgreiðslu á aðalfundi, með hliðsjón bæði af arðgreiðslustefnu og fjárhagslegum aðstæðum fyrirtækisins. Tillaga stjórnar er borin upp og hluthafar greiða atkvæði um hana.
Fjárhagsleg viðmið og arðgreiðslustefna ríkisfyrirtækja | |||
Fyrirtæki | Arðgreiðslustefna | Stefna um fjármagnsskipan (eiginfjárhlutfall) | Arðsemiskrafa (ávöxtun á meðalstöðu eiginfjár) |
Landsvirkjun | 50–70% af handbæru fé | 50-60% | 7,4% |
Landsnet | 50% af hagnaði | 45–55% | Sem næst viðmiði Raforkueftirlitsins um arðsemi eigin fjár í tekjumörkum |
RARIK | Allt að 50% af hagnaði | 45–55% | Sem næst viðmiði Raforkueftirlitsins um arðsemi eigin fjár í tekjumörkum |
Orkubú****Vestfjarða | Allt að 35% af hagnaði | – | – |
ISAVIA | 25–50% af hagnaði | 35–45% | 12,0% |
Landsbankinn | 50% af hagnaði | Að lágmarki yfir eigin-fjárkröfum eftirlitsaðila, að viðbættum stjórnendaauka | Yfir 10% |
Eftirfarandi stefnur hafa verið settar af stjórnum ríkisfyrirtækja á síðustu árum. Aðeins er um samantekt að ræða, stefnurnar sjálfar setja til dæmis ýmsar skorður til að tryggja fjárhagslegan stöðugleika, sem ekki eru talin upp hér.
Vert er að benda á að Landsvirkjun gerir upp í bandaríkjadal en Isavia og Landsbankinn í íslenskum krónum. Vaxtamunur á milli myntsvæða skýrir að hluta mun á arðsemiskröfu.
Orkufyrirtæki
Landsvirkjun hefur sett sér þá stefnu að greiða arðgreiðslu sem samsvarar 50-70% af handbæru fé frá rekstri, eftir umfangi fjárfestinga. Fjármagnsskipan miðast við að handbært fé frá rekstri / nettó skuldir sé á bilinu 30-45% og hlutfallið nettó skuldir / EBITDA á bilinu 2,0x til 3,0x. Að óbreyttu samrýmast þessi viðmið eiginfjárhlutfalli á bilinu 50-60%.
Landsnet hefur sett sér þá stefnu að greiða að jafnaði 50% af hagnaði næstliðins árs, að fjárhagsskilyrðum uppfylltum. Sé eiginfjárhlutfall undir 40% er ekki greidd arðgreiðsla, sé það á bilinu 40-45% er arðgreiðsluhlutfallið 25% og sé það yfir 55% verður arðgreiðsluhlutfallið 100%.
RARIK hefur sett sér þá stefnu að greiða allt að helming hagnaðar út í arðgreiðslu. Stefnan er stigskipt eftir skuldsetningu, þar sem möguleg arðgreiðsla lækkar með vaxandi skuldsetningu. Greiddur er helmingur ef nettó skuldir / EBITDA hlutfallið er undir 2,0x, annars minna en helmingur hagnaðar. Stefnt er að eiginfjárhlutfalli á bilinu 45-55%, og arðsemi eigin fjár sem næst leyfðri arðsemi.
Orkubú Vestfjarða hefur sett sér þá stefnu að greiða allt að 35% af hagnaði næstliðins árs. Eiginfjárstaða og lausafjárstaða þarf að vera góð og ef fjárfestingar næstliðins árs eru umfram handbært fé dregst það frá arðgreiðslutillögu.
Innviðafyrirtæki
Isavia hefur sett sér þá stefnu að greiða út að jafnaði 25-50% af hagnaði eftir skatta næstliðins árs sem arð til eiganda. Á tímabilum mikilla fjárfestinga, óvissu eða óhagstæðra markaðsaðstæðna getur stjórn ákveðið að lækka eða fella niður arðgreiðslur tímabundið. Til hliðsjónar ákvörðunum stjórnar um fjárhæð arðgreiðslna verði horft til þess að félagið viðhaldi fjárhagslegum styrk sínum og hafi bolmagn til að fjármagna nauðsynlegar framkvæmdir og rekstur á komandi árum. Þá skal til viðbótar taka mið af því að eiginfjárhlutfall verði að jafnaði á bilinu 35-45%.
Fjármálafyrirtæki
Landsbankinn hefur sett sér þá stefnu að reglulegar arðgreiðslur til hluthafa verði að jafnaði um 50% af hagnaði fyrra árs. Í samræmi við markmið um eiginfjárhlutfall er einnig stefnt að sérstökum arðgreiðslum til þess að auka hagkvæmni í fjármagnsskipan bankans, þegar við á. Við ákvörðun um fjárhæð arðgreiðslna verði tryggt að bankinn viðhaldi afar sterkri fjárhagsstöðu. Þannig verði tekið mið af áhættu í innra og ytra umhverfi, vaxtarhorfum og að bankinn viðhaldi til framtíðar traustri eiginfjár- og lausafjárstöðu og uppfylli lögbundnar kröfur um fjárhagsstöðu á hverjum tíma. Markmið bankans er að viðhalda eiginfjárhlutföllum sem eru á hverjum tíma yfir eiginfjárkröfum Seðlabanka Íslands og kröfum um eigið fé og hæfar skuldbindingar / undirskipan (MREL) skilavalds, að viðbættum stjórnendaauka (e. management buffer) sem skilgreindur er í áhættuvilja bankans.
Ársskýrsla ríkisfyrirtækja 2025