Ávarp ráðherra
Ávarp Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra
Ríkisfyrirtæki eru til vegna þess að koma þarf í veg fyrir þjónustu- eða markaðsbrest á ákveðnum sviðum. Þannig gegna þau lykilhlutverki í íslenska hagkerfinu og eiga að vera rekin með sömu kröfum um skilvirkni og arðsemi og einkarekin fyrirtæki. Sem fjármálaráðherra legg ég mikla áherslu á að þessi fyrirtæki nýti fjármuni skattgreiðenda á sem hagkvæmastan hátt og skili sem bestri þjónustu til samfélagsins.
Markmið ríkisins með eignarhaldi á fyrirtækjum þarf að vera skýrt og vel rökstutt.
Þau eru sett á fót fyrir fjármuni almennings og reksturinn verður að standast ströngustu kröfur um gagnsæi, ábyrgð og árangur.
Ríkisfyrirtæki verða að sýna fram á að þau skapi raunverulegt virði fyrir samfélagið - hvort sem það er með skilvirkri þjónustu, hagstæðu verði eða þau reki nauðsynlega innviði. Með öðrum orðum að þau fylli skarð sem önnur fyrirtæki á markaði ráða ekki við.
Eðli málsins samkvæmt hafa ríkisfyrirtæki sterka stöðu og þar með mikið vald sem þarf að fara varlega með og gæta þess að teygja sig ekki lengra í rekstri sínum en nauðsynlegt er og að gæta að því að raska ekki samkeppnismarkaði sem þau eiga snertifleti við. Frelsið til að starfa og keppa á frjálsum markaði er grundvallargildi, og ríkisfyrirtæki mega ekki hindra eða raska þeirri samkeppni með óeðlilegri háttsemi.
Á nýliðnum vetri settum við nýjar reglur um val á einstaklingum til stjórnarsetu í ríkisfyrirtækjum. Nýjar stjórnir tóku við í vor og hefur verklagið reynst sérlega vel. Þeim fjölmörgu sem gáfu kost á sér til stjórnarþátttöku vil ég þakka fyrir og sérstaklega þeim sem voru valin til þessara mikilvægu verka. Þeim treysti ég vel til að sinna sínum verkum með hag fyrirtækjanna, eigandans og almennings að leiðarljósi.
Ég tel mikilvægt að þessi fyrirtæki starfi út frá markaðslegum forsendum þar sem það á við, en gæti jafnframt almannahagsmuna þar sem réttlætanlegt er. Stjórnendur þurfa að bera fulla ábyrgð á árangri og rekstri sinna fyrirtækja.
Það er eðlilegt og sjálfsagt að ríkið geri sanngjarna kröfu um arðsemi á því mikla fjármagni sem er bundið í rekstri og eignum þessara mikilvægu fyrirtækja. Þess vegna hefur verið unnið að mörkun sérstakrar stefnu um þá arðsemi þessara fyrirtækja.
Með skýrum árangursmælingum, reglubundinni endurskoðun og sterkri stjórnun getum við tryggt að ríkisfyrirtæki þjóni íslenska samfélaginu sem best. Það er okkar skylda gagnvart skattgreiðendum að krefjast þess besta af þessum fyrirtækjum.
Ársskýrsla ríkisfyrirtækja 2024