Arðsemi, fjármagnsskipan, arðgreiðslur

Eitt af meginverkefnum eignaumsýslu félaga í eigu ríkisins á næstu árum er að innleiða ný viðmið um arðsemi, fjármagnsskipan og arðgreiðslur fyrirtækja í ríkiseigu sem sett eru árið 2025. Hér koma nokkur orð um mikilvægi þessara atriða.

Arðsemi sem grundvöllur sjálfbærs rekstrar

Ríkisfyrirtæki gegna lykilhlutverki í íslenska hagkerfinu. Ríkið er í mörgum tilvikum með mikið eigið fé bundið í fyrirtækjum sínum og það er mikilvægt hér eins og annars staðar að farið sé vel með fjármuni almennings. Sum félögin falla undir almannaþjónustu, önnur starfa á samkeppnismakaði en mörg þeirra eru þarna á milli, að hluta á samkeppnismarkaði og að hluta ekki.

Í öllum tilvikum er það grundvallaratriði að fjármagnið sem bundið er í þessum fyrirtækjum skapi virði fyrir samfélagið, í formi arðgreiðslna til ríkissjóðs eða önnur verðmæti fyrir samfélagið.

Starfi fyrirtæki á viðskiptalegum forsendum er arðsemi á eigið fé lykilmælikvarði á getu fyrirtækis til að skapa verðmæti af þeim fjármunum sem í það hefur verið fjárfest. Góð arðsemi tryggir að fyrirtækið geti staðið undir rekstrarkostnaði, borgað skuldir sínar, fjárfest í framtíðinni og skilað ávöxtun til eiganda. Ef arðsemin er ekki nægjanleg og samfélagslegt framlag óskýrt vakna spurningar um hlutverk ríkisins sem eiganda.

Í leiðbeiningum sínum um stjórnarhætti ríkisfyrirtækja leggur OECD áherslu á að ríkið setji sér skýr árangurviðmið og kröfur um arðsemi eigin fjár. Það á að vera grundvallarforsenda að fyrirtæki á samkeppnismarkaði í ríkiseigu skili að lágmarki jafn góðri ávöxtun og önnur sambærileg fyrirtæki.

Fjármagnsskipan og fjármögnunaráhætta

Fjármagnsskipan fyrirtækis - hlutfall skulda og eiginfjár - hefur áhrif á fjármögnunarkostnað og áhættuálag þess. Hærra skuldahlutfall eykur fjármögnunarkostnað en lægra skuldahlutfall lækkar arðsemi. Þetta þýðir að fjármagnsskipan þeirra ætti að endurspegla markaðsaðstæður og vera í samræmi við þá áhættu sem fylgir viðskiptastarfseminni. OECD hvetur til þess að ríkið setji skýrar stefnur um fjármagnsskipan og skuldastýringu ríkisfyrirtækja.

Arðgreiðslur og fjármagnsöflun

OECD leggur sérstaka áherslu á mikilvægi skýrrar arðgreiðslustefnu fyrir ríkisfyrirtæki. Í leiðbeiningum stofnunarinnar er tekið fram að ríkið sem eigandi ætti að búast við eðlilegri ávöxtun á fjárfestingu sína og að arðgreiðslustefna ætti að vera gagnsæ og fyrirsjáanleg.

Arðgreiðslur þjóna mörgum mikilvægum tilgangi samkvæmt OECD nálguninni. Þær tryggja að eigandinn - í þessu tilviki ríkið - fái eðlilega ávöxtun af fjárfestingu sinni og skapa hvata til skilvirkrar nýtingar fjármagns. Fyrir ríkissjóð þýða reglulegar arðgreiðslur stöðugt tekjuflæði sem hægt er að nýta til annarra mikilvægra verkefna í þágu samfélagsins.

Samspil þáttanna

Þessir þrír þættir eru innbyrðis tengdir og þurfa að vera í jafnvægi. Góð arðsemi gerir kleift að greiða arð og viðhalda heilbrigðri fjármagnsskipan. Rétt fjármagnsskipan stuðlar að betri arðsemi með hagkvæmri fjármögnun. Ábyrg arðgreiðslustefna tryggir að nægilegt fjármagn verði eftir til endurnýjunar og vaxtar á sama tíma og eigendur fá eðlilega ávöxtun.

OECD leggur áherslu á að þetta jafnvægi sé sérstaklega mikilvægt fyrir ríkisfyrirtæki þar sem þau þurfa að sinna bæði viðskiptalegum markmiðum og opinberum hagsmunum. Skýr viðmið og reglubundið eftirlit með þessum þáttum tryggir að ríkisfyrirtæki starfi á hagkvæman hátt og skili samfélaginu sem mestri langtímaverðmætasköpun án þess að skekkja samkeppni á markaði.