Kort til upplýsinga

Um þjóðlendur á vef óbyggðanefndar

Upplýsingar um starfsemi óbyggðanefndar má finna á vef nefndarinnar sem og alla úrskurði hennar.

Á kortasjá eru sýndar allar þjóðlendur sem búið er að úrskurða um á landinu. Þær línur sem settar eru fram á kortasjánni fylgja úrskurðum óbyggðanefndar og eru einungis til hliðsjónar úrskurðarorðum. Úrskurðarorðin og dómsorðin þar sem við á, eru ávallt rétthærri en framsettar línur á kortasjánni. Afmörkun á þjóðlendum getur breyst í kjölfar dóma dómstóla. Gerður er fyrirvari um þær breytingar í þessum gögnum. Hægt er að hlaða niður kortagögnum (LUK) á þessari kortasjá. Gögnin eru uppfærð reglulega.

Að neðan má finna kort sem sýnir staðsetningu skála, náma og fjarskiptamastra innan þjóðlendna annars vegar og hins vegar kort sem sýnir vatns- og jarðhitanotkun innan þjóðlendna.

Tekið skal fram að bæði kortin eru enn í vinnslu og fyrirhugað er að vinna frekar að þeim auk þess sem kortin eru ekki tæmandi og frekari upplýsingar geta bæst við síðar. Kortin sjálf og textinn fyrir neðan þau eru tenglar í PDF-skjöl sem sýna stærri útgáfu og henta til útprentunar.

Yfirlitskort yfir skála, námur og fjarskiptamöstur innan þjóðlendna

Yfirlitskort yfir skála, námur og fjarskiptamöstur innan þjóðlendna

Háspennulínur og -strengir Landsnets innan þjóðlendna

HÁSPENNULÍNUR OG -STRENGIR LANDSNETS INNAN ÞJÓÐLENDNA

Aflstöðvar, stíflur og lón Landsvirkjunar innan þjóðlendna

Aflstöðvar, stíflur og lón Landsvirkjunar innan þjóðlendna

Frágangur á námum Vegagerðarinnar innan þjóðlendna

Frágangur á námum Vegagerðarinnar innan þjóðlendna

Staða náma Vegagerðarinnar innan þjóðlendna

Staða náma Vegagerðarinnar innan þjóðlendna