Úrskurðir óbyggðanefndar og dómar í þjóðlendumálum

Ákvæði þjóðlendulaga um nefndina féllu úr gildi 1. janúar 2026 eftir að hún hafði lokið því verkefni sínu í desember 2025 að fjalla um mörk þjóðlendna og eignarlanda á landinu öllu.

Hér er að finna alla úrskurði óbyggðanefndar ásamt kortum og tenglum á dóma sem fallið hafa. Endanlegir dómar sem breyttu niðurstöðu óbyggðanefndar að einhverju leyti eru merktir með stjörnu (*).

Þrátt fyrir að óbyggðanefnd hafi lokið störfum er eftir sem áður hægt að óska eftir endurupptöku máls innan þriggja ára frá uppkvaðningu úrskurðar, séu skilyrði 19. gr. a þjóðlendulaga, nr. 58/1998, uppfyllt, sbr. einnig lög nr. 87/2024. Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögunum skal slíkri beiðni beint til forsætisráðherra sem skipar þá þrjá menn í óbyggðanefnd til að fara með beiðnina. Ekki skal þó skipa óbyggðanefnd til að fara með beiðni hafi einkamál verið höfðað vegna viðkomandi svæðis, sbr. 1. mgr. 19. gr., og dómur fallið, enda fer þá um endurupptöku eftir ákvæðum laga um meðferð einkamála.

Almenn atriði

Eyjar og sker

Svæði 12

Úrskurðir í málum nr. 1–2/2025 voru kveðnir upp 22. desember 2025. Útdráttur úr úrskurðunum birtist í Lögbirtingablaði 29. desember 2025.

Yfirlitskort (2025)
Helstu efnisatriði úrskurða

Austfirðir

Svæði 11

Úrskurðir í málum nr. 1–4/2022 voru kveðnir upp 5. nóvember 2024. Útdráttur úr úrskurðunum birtist í Lögbirtingablaði 8. nóvember 2024.

Yfirlitskort (2024)
Helstu efnisatriði úrskurða

Málsmeðferð skv. 1. málsl. 7. mgr. 10. gr. þjóðlendulaga

Úrskurðir í málum nr. 1–5/2023 voru kveðnir upp 17. október 2024. Útdráttur úr úrskurðunum birtist í Lögbirtingablaði 21. október 2024.
Helstu efnisatriði úrskurða

Ísafjarðarsýslur

Svæði 10B

Úrskurðir í málum nr. 1–8/2021 voru kveðnir upp miðvikudaginn 30. ágúst 2023. Útdráttur úr úrskurðunum birtist í Lögbirtingablaði 5. september 2023.

Yfirlitskort (2023)
Helstu efnisatriði úrskurða

Barðastrandarsýslur

Svæði 10C

Úrskurðir í málum nr. 1–4/2020 voru kveðnir upp 22. desember 2020. Útdráttur úr úrskurðunum birtist í Lögbirtingablaði 30. desember 2020. Úrskurður í enduruppteknu máli nr. 3/2020 var kveðinn upp 30. ágúst 2023 og útdráttur birtist í Lögbirtingablaði 5. september 2023.

Strandasýsla ásamt fyrrum Bæjarhreppi

Svæði 10A

Úrskurður í máli nr. 1/2019 var kveðinn upp 21. febrúar 2020. Útdráttur úr úrskurðinum birtist í Lögbirtingablaði 25. febrúar 2020.
Málsmeðferð skv. 1. málsl. 7. mgr. 10. gr. þjóðlendulaga:
Úrskurður í máli nr. 4/2023 kveðinn upp 17. október 2024. Útdráttur úr úrskurðinum birtist í Lögbirtingablaði 21. október 2024.

Snæfellsnes ásamt fyrrum Kolbeinsstaðahreppi og fyrrum Skógarstrandarhreppi

Svæði 9B

Úrskurðir í málum nr. 1–4/2018 voru kveðnir upp 15. ágúst 2019. Útdráttur úr úrskurðunum birtist í Lögbirtingablaði 23. ágúst 2019.

Dalasýsla að undanskildum fyrrum Skógarstrandarhreppi

Svæði 9A

Úrskurðir í málum nr. 1–3/2016 voru kveðnir upp 3. maí 2018.

Mýra- og Borgarfjarðarsýsla að undanskildum fyrrum Kolbeinsstaðahreppi ásamt Langjökli

Svæði 8B

Úrskurðir í málum nr. 1–5/2014 voru kveðnir upp 11. október 2016, 3. maí 2018 í enduruppteknum málum nr. 1–2/2014 og 21. júní 2019 í enduruppteknu máli nr. 1/2014.
Málsmeðferð skv. 1. málsl. 7. mgr. 10. gr. þjóðlendulaga:
Úrskurður í máli nr. 3/2023 kveðinn upp 17. október 2024. Útdráttur úr úrskurðinum birtist í Lögbirtingablaði 21. október 2024.

Norðvesturland: Húnavatnssýsla vestan Blöndu ásamt Skaga

Svæði 8A

Úrskurðir í málum nr. 1–5/2013 voru kveðnir upp 19. desember 2014.
Málsmeðferð skv. 1. málsl. 7. mgr. 10. gr. þjóðlendulaga:
Úrskurðir í málum nr. 2/2023 og 5/2023 voru kveðnir upp 17. október 2024. Útdráttur úr úrskurðunum birtist í Lögbirtingablaði 21. október 2024.

Vestanvert Norðurland, nyrðri hluti: Tröllaskagi norðan Öxnadalsheiðar

Svæði 7B

Úrskurðir í málum nr. 1–2/2009 voru kveðnir upp 10. október 2011.

Heildarútgáfa úrskurða: Ársskýrsla 2010–2011
Helstu efnisatriði úrskurða

Vestanvert Norðurland, syðri hluti

Svæði 7A

Úrskurðir í málum nr. 1–5/2008 voru kveðnir upp 19. júní 2009.

Yfirlitskort (2009)
Heildarútgáfa úrskurða: Ársskýrsla 2009: fyrri hluti – seinni hluti
Helstu efnisatriði úrskurða í málum nr. 1–5/2008

Málsmeðferð skv. 1. málsl. 7. mgr. 10. gr. þjóðlendulaga:
Úrskurður í máli nr. 2/2023 var kveðinn upp 17. október 2024. Útdráttur úr úrskurðinum birtist í Lögbirtingablaði 21. október 2024.

Austanvert Norðurland

Svæði 6

Úrskurðir í málum nr. 1–5/2007 voru kveðnir upp 6. júní 2008.

Yfirlitskort (2008)
Heildarútgáfa úrskurða: Ársskýrsla 2008
Helstu efnisatriði úrskurða

Norðausturland

Svæði 5

Úrskurðir í málum nr. 1–5/2005 voru kveðnir upp 29. maí 2007.

Yfirlitskort (2007)
Heildarútgáfa úrskurða: Ársskýrsla 2007
Helstu efnisatriði úrskurða

Málsmeðferð skv. 1. málsl. 7. mgr. 10. gr. þjóðlendulaga:
Úrskurður í máli nr. 1/2023 var kveðinn upp 17. október 2024. Útdráttur úr úrskurðinum birtist í Lögbirtingablaði 21. október 2024.

Suðvesturland

Svæði 4

Úrskurðir í málum nr. 1–6/2004 voru kveðnir upp 31. maí 2006.

Yfirlitskort (2006)
Heildarútgáfa úrskurða: Ársskýrsla 2005–2006
Helstu efnisatriði úrskurða

Rangárvallasýsla og Vestur-Skaftafellssýsla

Svæði 3

Úrskurðir í málum nr. 1–9/2003 voru kveðnir upp 10. desember 2004.

Yfirlitskort (2004)
Heildarútgáfa úrskurða: Ársskýrsla 2004

Sveitarfélagið Hornafjörður

Svæði 2

Úrskurðir í málum nr. 1–5/2001 voru kveðnir upp 14. nóvember 2003.

Yfirlitskort (2003)
Heildarútgáfa úrskurða: Ársskýrsla 2003

Árnessýsla

Svæði 1

Úrskurðir í málum nr. 1–7/2000 voru kveðnir upp 21. mars 2002.

Yfirlitskort af svæði 1 (2002)
Heildarútgáfa úrskurða: Ársskýrsla 1998–2002

Mörk sveitarfélaga

Úrskurður í máli nr. S-1/2011 kveðinn upp 20. júní 2014.

Ársskýrslur óbyggðanefndar

Kort eru birt með leyfi Landmælinga Íslands [L02030013 og L05040005]