09. júl. 2026Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Menntamál, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Ný skýrsla OECD: Lífskjör á Íslandi með því besta sem þekkist
Íslenskt efnahagsumhverfi er heilbrigt, jöfnuður óvíða meiri og staða ríkissjóðs traust. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um Ísland, sem birt var í dag. Skýrslur af þessu tagi eru gefnar út á tveggja ára fresti. Angel Gurría, framkvæmdastjóri OECD, kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar á blaðamannafundi ásamt Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra og Lilju D. Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra.