Ráð og stjórnir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Innflytjendaráð
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Samkvæmt lögum um málefni innflytjenda nr. 116/2012.
Hlutverk innflytjendaráðs er að:
vera ráðherra til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málefnum innflytjenda og hafa eftirlit með framkvæmd hennar,
stuðla að samhæfingu og samráði milli ráðuneyta, sveitarfélaga og innan stjórnsýslunnar,
stuðla að opnum umræðum um málefni innflytjenda með ráðstefnum og fundum með hagsmunaaðilum,
gera árlega tillögu til ráðherra um hverjar áherslur þróunarsjóðs innflytjendamála skulu vera,
gera árlega tillögu til ráðherra um veitingu styrkja úr þróunarsjóði innflytjendamála,
skila ráðherra árlega skýrslu um störf sín,
vinna önnur verkefni í samræmi við markmið laganna samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra