20 október 2017Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Boðið upp á doktorsnám við Háskólann á Akureyri
Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, undirritaði þann 20. október sl. heimild Háskólans á Akureyri til að bjóða upp á doktorsnám í hjúkrunarfræði, líftækni, sjávarútvegs- og fiskeldisfræði, viðskiptafræði, lögfræði og félagsfræði.