15 apríl 2020Utanríkisráðuneytið
Ræddu um að styrkja viðbragðsáætlanir Atlantshafsbandalagsins vegna heimsfaraldra
Viðbrögð Atlantshafsbandalagsins við COVID-19 heimsfaraldrinum voru rædd á fjarfundi varnarmálaráðherra bandalagsins í dag. Antti Kaikkonen, varnarmálaráðherra Finnlands, og Peter Hultqvist, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, tóku þátt í fundinum, ásamt Joseph Borell, utanríkismálastjóra ESB.