25 apríl 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Viðurkenningar á Degi umhverfisins
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, veitti Eldingu Hvalaskoðun Reykjavík í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Brúarskóla í Reykjavík og Grundaskóla á Akranesi útnefndir Varðliðar umhverfisins. Þá voru fimm stúlkur í 10.…