28 apríl 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Kuðungurinn veittur og Varðliðar umhverfisins útnefndir
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Björt Ólafsdóttir, veitti Endurvinnslunni í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Ártúnsskóla og Lýsuhólsskóla, Grunnskóla Snæfellsbæjar útnefndir Varðliðar umhverfisins.