09 maí 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Mikilvægt að hlusta á raddir barna
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, fékk í dag afhenta skýrslu sérfræðihóps fatlaðra barna en þar er að finna ábendingar um það sem betur má fara þegar kemur að málefnum fatlaðra barna og unglinga. Þær snúa meðal annars að aðgengi, ferðaþjónustu, upplýsingagjöf, tómstundastarfi, fordómum, virðingu í samskiptum, einelti og ofbeldi og er nánar lýst í skýrslunni.