07 febrúar 2019Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Forsætisráðherra undirritar samning við Samtökin ´78
Forsætisráðuneytið og Samtökin ´78, hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi, hafa gert með sér samning um að samtökin sinni sértækri fræðslu, þjónustu og ráðgjöf er varða málefni hinsegin fólks. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og María Helga Guðmundsdóttir, formaður Samtakanna ´78, undirrituðu samning þessa efnis í Stjórnarráðinu.