11 febrúar 2018Mennta- og barnamálaráðuneytið
Menntamálaráðherrar Suður-Kóreu og Íslands vilja hefja samstarf í menntamálum
Kim Sang-Kon, menntamálaráðherra og varaforsætisráðherra Suður-Kóreu, tók á móti Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í Seúl. Á fundinum var ákveðið að hefja samstarf á milli menntamálaráðuneytanna með það að leiðarljósi að efla menntun, rannsóknir og þróun. Nú þegar eru samningar á milli háskóla ríkjanna um skiptinám sem margir nemar hafa nýtt sér.…