11 maí 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðSamráðsfundur með sérfræðingum OECD um aukinn árangur á sviði jafnréttismálaSérfræðingar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (e. Organisation for Economic Cooperation and Development, OECD) á sviði stefnumótunar og jafnréttismála voru gestir samráðsfunda um samþættingu jafnréttissjónarmiða við stefnumótun stjórnvalda sem haldnir voru hér á landi 7. og 8. maí í samstarfi jafnréttisteymis velferðarráðuneytisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
11 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðÚttekt á þjóðhagslegum áhrifum hvalveiðaKristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, tók í dag við undirskriftum 50.424 einstaklinga sem krefjast þess að Faxaflói verði lýstur griðarsvæði hvala. Fulltrúar frá IFAW (International Fund for Animal Welfare), Hvalaskoðunarsamtökum Íslands og Samtökum ferðaþjónustunnar afhentu ráðherra undirskriftirnar.
11 maí 2018ForsætisráðuneytiðForsætisráðherra fékk aðstoð frá ungum skákkonumKatrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í skákmaraþoni á vegum Hrafns Jökulssonar og Hróksins og Fatimusjóðsins í þágu barna í Jemen, í hádeginu í dag.
11 maí 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðErna Kristín Blöndal annast verkefnisstjórn í málefnum barnaMarkviss vinna að endurskoðun félagslega kerfisins eins og það snýr að börnum og fjölskyldum þeirra er hafin, líkt og boðað var á fjölsóttri ráðstefnu velferðarráðuneytisins um snemmtæka íhlutun í málefnum barna í liðinni viku. Velferðarráðuneytið hefur samið við Ernu Kristínu Blöndal um að leiða vinnuna sem framundan er og lýtur m.a.…
11 maí 2018DómsmálaráðuneytiðDómsmálaráðherra sótti ráðstefnu um aðgerðir gegn fjármögnun hryðjuverkaSigríður A. Andersen, dómsmálaráðherra sótti ráðstefnuna „No Money for Terror“ í París á dögunum þar sem fjallað var um efldar aðgerðir gegn fjármögnun hryðjuverka um heim allan. Yfir 70 ríki tóku þátt í ráðstefnunni sem lauk með sameiginlegri yfirlýsingu um aukna alþjóðlega samhæfingu og meira gegnsæi í fjármálaviðskiptum.
11 maí 2018DómsmálaráðuneytiðOpinn samráðsfundur um skýrslu um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins
11 maí 2018Forsætisráðuneytið, UtanríkisráðuneytiðForgangsmál fyrir hagsmunagæslu gagnvart EvrópusambandinuRíkisstjórnin samþykkti í morgun lista yfir þau mál sem eru í undirbúningi á vettvangi Evrópusambandsins og íslensk stjórnvöld ætla að vakta sérstaklega.
11 maí 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðDrög að breytingu á byggingarreglugerð í umsögnUmhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á byggingarreglugerð nr. 112/2012.
09 maí 2018Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, ForsætisráðuneytiðIstanbúlsamningurinn fullgildur á Íslandi Fulltrúar ýmissa félagasamtaka, þingmenn og ýmsir fleiri komu saman í dag í tilefni af fullgildingu Istanbúlsamningsins.
09 maí 2018InnviðaráðuneytiðDrög að reglugerð um leyfi til rekstrar báta í farþegaflutningum til umsagnar Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt drög að nýrri reglugerð um leyfi til rekstrar báta í farþegaflutningum. Þar er m.a. brugðist við tillögum rannsóknarnefndar samgönguslysa um aukið öryggi vegna slysa sem orðið hafa um borð í harðbotna slöngubátum (RIB). Umsagnarfrestur er til og með 25. maí.
09 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðAuglýsing um WTO-tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, smjöri, ostum, fuglseggjum og afurðum þeirra og unnum kjötvörum. Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 föstudaginn 18. maí 2018.
09 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðAuglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss.Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 föstudaginn 18. maí 2018.
09 maí 2018Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðYfirlýsing menningarmálaráðherra Norðurlanda í kjölfar #églíka-byltingarinnarMenningarmálaráðherrar Norðurlanda skrifuðu í dag undir sameiginlega yfirlýsingu um aðgerðir vegna #églíka-byltingarinnar.
09 maí 2018ForsætisráðuneytiðÞjóðaröryggisráð fundaði í dag í þriðja sinnÁ fundi þjóðaröryggisráðs í dag voru kynnt og rædd málefni er varða þjóðaröryggi sem eru efst á baugi á þeim sviðum sem þjóðaröryggisstefnan tekur til.
09 maí 2018ForsætisráðuneytiðForsætisráðherrar Norðurlandanna funda í Svíþjóð 22. - 23. maí nk. Óformlegur fundur forsætisráðherra Norðurlandanna verður haldinn í Örnsköldsvik í Svíþjóð dagana 22. - 23. maí nk.
09 maí 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðUm 350 manns sátu ráðstefnu um málefni barna í gærHúsfyllir var á ráðstefnunni; Snemmtæk íhlutun í málefnum barna á Íslandi – SIMBI – sem velferðarráðuneytið stóð fyrir og var haldin í gær. Upptaka frá ráðstefnunni ásamt glærum fyrirlesara er nú hægt að nálgast á vefnum.
09 maí 2018InnviðaráðuneytiðNý reglugerð um Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélagaGefin hefur verið út ný reglugerð um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Þar er m.a. kveðið á um skilyrði þess að veittir séu styrkir til sveitarfélaga úr sjóðnum. Athygli er vakin á því að umsóknir sveitarfélaga um styrki á þessu ári skulu hafa borist Jöfnunarsjóði sveitarfélaga eigi síðar en 1. júní nk.
09 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðNiðurstaða úthlutunar á tollkvótum frá Evrópusambandinu á landbúnaðarafurðum alifuglakjöti lífrænt/lausagöngu, fyrir tímabilið 1. maí – 31. desember 2018Miðvikudaginn 2. maí 2018 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu á kjöti af alifuglum, fryst – lífrænt ræktað/lausagöngu samkvæmt reglugerð nr. 374/2018, (1.) breyting á reglugerð nr. 318/2018 fyrir tímabilið 1. maí – 31. desember 2018.
09 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðTil umsagnar: Reglugerð um veiðar á kröbbumTil stendur að gera breytingar á fyrirkomulagi krabbaveiða með það að markmiði að gefa áhugasömum útgerðum kost á krabbaveiðum án takmarkana. Óskað er eftir athugasemdum við meðfylgjandi drög en reiknað er með að nýtt fyrirkomulag taki gildi 1. september 2018.
09 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðFrumvarp um tollfrjálsa móðurmjólk og innflutning ostaAnnars vegar er í frumvarpinu kveðið á um að tollar á innflutta móðurmjólk verði felldir niður og hins vegar að hraðað verði innleiðingu á auknum kvótum vegna innflutnings á upprunatengdum ostum.
09 maí 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðStarfshópur um kjör aldraðra skipaðurFélags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað starfshóp sem fjalla á um kjör aldraðra til að fá betri yfirsýn yfir ólíkar aðstæður sem eldri borgarar búa við og gera tillögur um hvernig bæta megi kjör þeirra sem lökust hafa þau. Hópnum er ætlað að skila tillögum sínum fyrir 1. nóvember næstkomandi.
09 maí 2018DómsmálaráðuneytiðLokadrög frumvarps um persónuvernd birt á samráðsgáttDómsmálaráðherra mun leggja fram frumvarp til nýrra persónuverndarlaga á næstu dögum. Verið er að ljúka samráðsferli innan Stjórnarráðsins í samræmi við verklagsreglur Stjórnarráðsins um undirbúning og vinnslu stjórnarfrumvarpa.
08 maí 2018InnviðaráðuneytiðSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ávarpaði Arctic Circle Forum í Þórshöfn í Færeyjum „Efnahagsuppbygging og umhverfisvernd eru engar andstæður,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í ávarpi sínu í opnunarathöfn Arctic Circle Forum í Þórshöfn í Færeyjum í dag. „Þvert á móti, verður þetta tvennt að fara saman svo að tryggja megi sjálfbæra þróun og lífsafkomu fólks á norðurslóðum.“
08 maí 2018Dómsmálaráðuneytið, ForsætisráðuneytiðRáðherranefnd í jafnréttismálum fundar með sendinefnd á vegum OECD Ráðherranefnd í jafnréttismálum fundaði með sendinefnd á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í morgun.
08 maí 2018Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðMenningarhús á SauðárkrókiUppbygging menningarhúsa á landsbyggðinni heldur áfram. Um helgina var undirrituð viljayfirlýsing um áframhaldandi samstarf um fjármögnun og undirbúning menningarhúss í Skagafirði.
08 maí 2018ForsætisráðuneytiðHagsmunaskráning ráðuneytisstjóra og aðstoðarmanna ráðherraRíkisstjórnin ákvað að taka upp hagsmunaskráningu fyrir ráðuneytisstjóra í Stjórnarráði Íslands og aðstoðarmenn ráðherra á fundi sínum í morgun.
08 maí 2018HeilbrigðisráðuneytiðTillögur um að beita efnahagslegum hvötum í lýðheilsuskyniSvandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í dag tillögur Embættis landlæknis um að breyta álögum á tiltekin matvæli til bæta neysluvenjur landsmanna. Tillögurnar eru í samræmi við ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um aðgerðir til að efla lýðheilsu og draga úr heilsufarslegum ójöfnuði.
08 maí 2018Mennta- og barnamálaráðuneytiðUmsækjendur um stöðu skólameistara og rektorsÁtta umsóknir bárust um stöðu skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla og þrjár um embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð.
07 maí 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðRáðstefna um málefni barna á morgunRúmlega 300 þátttakendur hafa skráð sig á opna ráðstefnu um snemmtæka íhlutun í málefnum barna á Íslandi - SIMBI - á Hilton Reykjavík Nordica á morgun. Enn eru örfá sæti laus. Fyrirlesarar eru innlendir og erlendir með víðtæka þekkingu á málefnum barna.
07 maí 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðGæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar tekin til starfaNý ráðuneytisstofnun; Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF), tók formlega til starfa í dag. Stofnunin mun í byrjun sinna stjórnsýsluverkefnum og eftirliti á sviði félagsþjónustu sem veitt er af hálfu sveitarfélaga, opinberra stofnana eða á grundvelli samninga, auk afmarkaðs eftirlits á sviði barnaverndar.
07 maí 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðÞverpólítískur starfshópur skipaður um orkustefnu fyrir ÍslandÞórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur skipað starfshóp með aðkomu allra þingflokka til að vinna orkustefnu fyrir Ísland. Þess er vænst að tillaga hópsins verði lögð fram til umræðu á Alþingi í byrjun árs 2020.
07 maí 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðUmhverfisþing haldið 9. nóvemberUmhverfis- og auðlindaráðherra boðar til XI. Umhverfisþings föstudaginn 9. nóvember 2018. Þingið fer fram á Grand Hótel Reykjavík.
05 maí 2018Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðRannsóknarinnviðir og evrópskt samstarf: tækifæri og áskoranirMennta- og menningarmálaráðuneytið heldur kynningarfund í tengslum við undirbúning að gerð vegvísis um rannsóknarinnviði mánudaginn 7. maí.
05 maí 2018Mennta- og barnamálaráðuneytiðForritað á íslensku – umhverfi micro:bit tölvanna þýttMicro:bit smátölvur njóta mikilla vinsælda hjá yngstu forriturunum. Nú er hægt að forrita þar á íslensku.
04 maí 2018HeilbrigðisráðuneytiðAfrakstur nýsköpunarstofu um þjónustu við aldraða á höfuðborgarsvæðinuFjórar ýtarlegar tillögur um aðgerðir til að bæta þjónustu við aldraða eru afrakstur nýsköpunarstofu um þessi mál sem haldinn var í Höfða í lok apríl. Aðstandendur nýsköpunarstofunnar hafa ákveðið að efna til formlegs samstarfs til að vinna nánar úr tillögunum og hrinda þeim í framkvæmd.
04 maí 2018DómsmálaráðuneytiðRíkissaksóknari svarar dómsmálaráðherra Dómsmálaráðherra óskaði eftir því 20. apríl sl. að ríkissaksóknari kannaði, með vísan til 19. gr. sakamálalaga, tildrög þess að einstaklingur var vistaður á Sogni í kjölfar fyrirtöku gæsluvarðhaldskröfu 16. apríl sl. og lagalegan grundvöll þeirrar frelsissviptingar. Ríkissaksóknari hefur nú greint dómsmálaráðuneytinu frá niðurstöðu sinni og fyrirhuguðum viðbrögðum.
04 maí 2018Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, AtvinnuvegaráðuneytiðKvikmyndin Kona fer í stríð fær styrkRíkisstjórnin samþykkti í dag að veita kvikmyndinni Kona fer í stríð styrk af ráðstöfunarfé sínu til að standa straum af kynningarkostnaði vegna þátttöku á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
04 maí 2018HeilbrigðisráðuneytiðAðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á ÍslandiStarfshópur sem unnið hefur tillögur að aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi hefur skilað heilbrigðisráðherra niðurstöðum sínum. Aðgerðaáætlunin verður kynnt á málþingi geðsviðs Landspítala um sjálfsvígsfornarnir í dag.
04 maí 2018DómsmálaráðuneytiðSamningur um talsmannaþjónustu Dómsmálaráðuneytið og Útlendingastofnun skrifuðu undir samning á dögunum við Rauða krossinn á Íslandi um aðstoð og þjónustu við einstaklinga sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi.
03 maí 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðMiklar veðurfarsbreytingar og ör súrnun sjávarNý skýrsla um afleiðingar loftslagsbreytinga á náttúru og samfélag á Íslandi var kynnt í Veðurstofu Íslands í dag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók á móti fyrsta eintakinu og sagði við það tilefni að skýrslan myndi nýtast í starfi stjórnvalda, meðal annars við fræðslu, eflingu vöktunar og aðlögun að loftslagsbreytingum.
03 maí 2018HeilbrigðisráðuneytiðSkipað í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu heilbrigðisþjónustuSvandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Elsu B. Friðfinnsdóttur skrifstofustjóra yfir skrifstofu heilbrigðisþjónustu í velferðarráðuneytinu. Skipunin er í samræmi við mat ráðgefandi hæfnisnefndar sem mat Elsu hæfasta úr hópi þrettán umsækjenda.
03 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðNiðurstöður um aukaúthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrri hluta árs 2018Föstudaginn 27. apríl 2018 rann út tilboðsfrestur í aukaúthlutun tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2018, sbr. reglugerð nr. 1010/2017.
03 maí 2018ForsætisráðuneytiðForsætisráðherra fundaði með öldungardeildarþingmönnum franska þjóðþingsinsKatrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með fjórum öldungardeildarþingmönnum frá franska þjóðþinginu sem eru í vináttuhópi Norður-Evrópu.
03 maí 2018HeilbrigðisráðuneytiðTillögur starfshóps um bætta tannheilsu öryrkja og aldraðraLeitað verður samninga við tannlækna um nýja gjaldskrá vegna tannlækninga öryrkja og aldraðra og kostnaðarþátttaka ríkisins aukin. Byggt verður á tillögum starfshóps heilbrigðisráðherra um aukna greiðsluþátttöku ríkisins í tannlækningum þessa hóps sem skilaði tillögum sínum fyrir nokkru.
03 maí 2018ForsætisráðuneytiðFjárhæðir atvinnuleysistrygginga hækka frá og með 1. maí 2018Atvinnuleysisbætur hækkuðu 1. maí sl. í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í þágu félagslegs stöðugleika sem gefin var út 28. febrúar sl.
03 maí 2018Mennta- og barnamálaráðuneytiðBreyting á reglugerð um sveinsprófBreyting á reglugerð um sveinspróf hefur tekið gildi sem heimilar nemendum sem eiga innan við 10% ólokið af vinnustaðanámi sínu að taka sveinspróf.
03 maí 2018Mennta- og barnamálaráðuneytiðHjólum í vinnunaHeilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, er hafið. Meginmarkmið verkefnisins er að vekja athygli heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgönguleiðum.
03 maí 2018Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytiðÞroskahjálp og framtíðinÁ fundi mennta- og menningarmálaráðherra með fulltrúum Þroskahjálpar var rætt um réttindi og tækifæri fatlaðs fólks til menntunar og þátttöku í menningarlífinu.
02 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðSkýrsla starfshóps um tollasamning og mótvægisaðgerðir stjórnvaldaMeð vísan til umræðu í fjölmiðlum um mótvægisaðgerðir vegna tollasamnings Íslands við Evrópusambandið vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri.
02 maí 2018ForsætisráðuneytiðGrunnskólanemar úr Árbæjarskóla funduðu með forsætisráðherraÍda Marín, Selma María, Elín Rósa og Astrid Eyberg, grunnskólanemar úr Árbæjarskóla, funduðu með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í morgun.