04 desember 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið
Forsætisráðherra ræddi afvopnunarmál, loftslagsbreytingar og kynferðislegt ofbeldi á fundi leiðtoga Atlantshafsbandalagsins
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sóttu afmælisfund leiðtoga Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Lundúnum í dag. Forsætisráðherra fjallaði þar um afvopnunarmál, loftslagsbreytingar og baráttuna gegn kynferðislegu ofbeldi og áreitni á vettvangi bandalagsins.