01 desember 2017Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið
Nýr samningur um stjórnun fiskveiða og vísindasamstarf í Norður-Íshafi
Samkomulag hefur náðst á milli Bandaríkjanna, Danmerkur f.h. Færeyja og Grænlands, Íslands, Japan, Kanada, Kína, Noregs, Rússlands, Suður-Kóreu og Evrópusambandsins um drög að samningi sem kemur í veg fyrir stjórnlausar fiskveiðar í Norður-Íshafi ef ísinn þar hopar enn frekar og möguleikar til fiskveiða skapast.