02 júlí 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Viðamiklar aðgerðir til að auka kolefnisbindingu og efla lífríki hér á landi
Loftslagsávinningur af kolefnisbindingu og endurheimt votlendis eykst verulega með aðgerðum sem Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynntu í dag á blaðamannafundi í Elliðaárdalnum. Kolefnisbinding víðs vegar um landið verður aukin til muna og er hún annar meginþáttur aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum.