07 september 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið
Viljayfirlýsing um aukið samstarf í þágu barna
Ráðherrar félags- og jafnréttismála, heilbrigðismála, mennta- og menningarmála, dómsmála, samgöngu- og sveitarstjórnarmála og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa undirritað viljayfirlýsingu um aukið samstarf á málefnasviðum sem snúa að málefnum barna. Yfirlýsingin var undirrituð að loknum ríkisstjórnarfundi í Ráðherrabústaðnum í dag.