16 nóvember 2020Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2020
Rithöfundurinn Gerður Kristný hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Þau eru árlega veitt einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar.