18 september 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Fyrstu Svansvottuðu endurbæturnar á Norðurlöndunum
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, afhenti í dag Andra Þór Arinbjarnarsyni, framkvæmdastjóra Reita, leyfi fyrir fyrstu Svansvottuðu endurbætur á húsnæði á Norðurlöndunum. Um er að ræða endurbætur á skrifstofuhúsnæði Umhverfisstofnunar við Suðurlandsbraut 24 sem er í eigu Reita.