21 desember 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Nýtt meðferðarheimili fyrir börn í Garðabæ
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, Heiða Björg Pálmadóttir, forstjóri Barnaverndarstofu og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, undirrituðu í dag sameiginlega viljayfirlýsingu um uppbyggingu nýs meðferðarheimilis fyrir börn í Garðabæ. Ásmundur Einar segist hafa lagt mikla áherslu á úrbætur í þessum málaflokki og það sé afar ánægjulegt að búið sé að finna heimilinu stað.