29 október 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ræddu samgöngur og samskipti Íslands og Grænhöfðaeyja
Málefni eyríkja, samgöngur og samskipti Íslands og Grænhöfðaeyja voru til umræðu á fundi Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra og Jose da Silva Goncalves, sjávarútvegs-, samgöngu- og ferðamálaráðherra og Gilberto Barros, aðstoðarfjármálaráðherra Grænhöfðaeyja sl. föstudag.