09 október 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Margrét María Sigurðardóttir skipuð forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvarinnar
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur skipað Margréti Maríu Sigurðardóttur forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, til fimm ára. Ákvörðun um skipun hennar er í samræmi við mat ráðgefandi nefndar sem mat hæfni umsækjenda.