12 maí 2020Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið
Sýnataka á Keflavíkurflugvelli
Ríkisstjórnin ákvað í morgun að stefna að frá og með 15. júní næstkomandi geti þeir sem koma til landsins farið í COVID-19 próf á Keflavíkurflugvelli. Reynist það neikvætt þurfi þeir ekki að fara í 2ja vikna sóttkví.