05. maí 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Samþætt heimaþjónusta fyrir eldra fólk í Árborg
Unnið er að því að koma upp samþættri heimaþjónustu fyrir eldra fólk í Árborg og sjá til þess að rétt þjónusta sé veitt af réttum aðila og á réttum tíma. Samkomulag þessa efnis var staðfest í Árborg í dag. Viðstödd voru Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, og Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, auk fjölda gesta.…