06. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk
„Stolt, fötluð og þakklát“ – áhrifaríkt ávarp félags- og húsnæðismálaráðherra á aðildarríkjaþingi í New York
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávarpaði í kvöld þing aðildarríkja um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem nú er hafið í New York. Ávarp ráðherra var óvenjulegt og áhrifamikið en þar deildi hún lífshlaupi sínu sem lögblindur, fatlaður einstaklingur. „Ég ólst upp í litlu sjávarplássi og skammaðist mín fyrir að vera blind. Ég var öðruvísi – og var lögð í einelti. Ég gat ekki varið mig, sá hvorki snjóboltana né steinana sem var kastað í mig. Mig dreymdi um menntun en ég sá ekki stafina í kennslubókunum og flosnaði upp úr skóla,“ sagði hún.