09 mars 2026
Ísland leiðir gerð alþjóðastaðla um réttindi barna
Ísland gegnir forystuhlutverki við gerð fyrstu alþjóðastaðla um réttindi barna. Staðlarnir verða gefnir út af alþjóðlegu staðlasamtökunum ISO. Þeir munu gera ríkjum, sveitarfélögum, fyrirtækjum, stofnunum og hagsmunasamtökum kleift að færa réttindi barna úr yfirlýsingum og lagaramma yfir í raunverulegar, rekjanlegar og mælanlegar aðgerðir.