09 júlí 2026
Nýju framkvæmdatímabili Uppbyggingarsjóðs EES í Portúgal hleypt af stokkunum
Framlög úr Uppbyggingarsjóði EES til Portúgal nema samtals 126,3 milljónum evra. Fjármagnið verður nýtt til verkefna á sviði blás hagkerfis, grænna umskipta, menningar og aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi og annarra verkefna sem stuðla að sjálfbærri þróun og auknu tvíhliða samstarfi milli Portúgal og EES-EFTA ríkjanna, Íslands, Liechtenstein og Noregs.