27 febrúar 2026
Ný forvarnaáætlun til að vernda börn og ungmenni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi kynnt
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti nýja forvarnaáætlun gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi meðal barna og ungmenna í ríkisstjórn í morgun. Áætlunin hefur það að markmiði að koma á og viðhalda skipulögðum forvörnum meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni.