23 maí 2024
97% þykir vænt um íslenskuna: Niðurstöður viðhorfskönnunar
Niðurstöður spurningakönnunar um viðhorf til íslensku benda til þess að fólk sé almennt mjög jákvætt í garð tungumálsins, hafi mikla trú á eigin getu í íslensku en vilji jafnframt bæta færni sína. Viðhorf svarenda reyndist fremur jafnt þegar horft er til aldurs, menntunar, búsetu og tekna.