18 febrúar 2026
Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum
Tilgangur menningarsjóðs Íslands og Finnlands er að efla menningartengsl milli landanna. Sjóðurinn veitir árlega styrki til einstaklinga, samtaka, félaga og stofnana vegna verkefna sem geta orðið til þess að efla samskipti milli Íslands og Finnlands á sviði menningar, lista, atvinnulífs og þjóðlífs almennt. Frekari upplýsingar um Menningarsjóð Íslands og Finnlands má finna á hér.