15 júní 2026
Svona mun Þjóðarhöllin líta út
Nú er komin mynd á nýja og glæsilega Þjóðarhöll, fjölnota íþróttamannvirki sem mætir kröfum nútímans með fyrirmyndaraðstöðu fyrir landslið, íþróttafélög og almenning til íþróttaiðkunar, áhorfs og samveru. Þjóðarhöll ehf., fyrir hönd ríkis og Reykjavíkurborgar, hefur valið tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. að hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal.