04 maí 2026
Þemaþingi Norðurlandaráðs í Ósló: Áhersla á áfallaþol og samvinnu
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, sótti í síðustu viku þemaþing Norðurlandaráðs, sem fram fór á Stórþinginu í Ósló undir yfirskriftinni: „Eru Norðurlönd búin undir áföll? Sveigjanlegt samstarf og frjáls för til grundvallar seiglu Norðurlanda.“