25 ágúst 2016
Utanríkisráðherra sendir samúðarkveðjur til ítölsku þjóðarinnar
<p>Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra, sendi í morgun samúðarkveðjur til Paolo Gentiloni, utanríkisráðherra Ítalíu, og ítölsku þjóðarinnar allrar vegna þess mikla mannfalls og þeirrar gríðarlegu eyðileggingar sem jarðskjálftinn í gær olli. Sagði Lilja íslensk stjórnvöld reiðubúin að veita Ítölum aðstoð á þessum erfiðu tímum. </p>