29 maí 2026
Ráðherra í tímabundið veikindaleyfi
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, er farin í tímabundið veikindaleyfi. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mun gegna starfi mennta- og barnamálaráðherra í fjarveru hennar.