16 desember 2010
Lokið við gerð alþjóðasamnings um leit og björgun á norðurslóðum
Á fundi aðildarríkja Norðurskautsráðsins, sem haldinn var í Reykjavík 14.-16. desember., var lokið gerð alþjóðasamnings um samstarf við leit og björgun á hafi og í lofti á norðurslóðum. Fundinn sóttu um 50 sérfræðingar frá Bandaríkjunum, Danmörku fyrir hönd Færeyja og Grænlands, Finnlandi, Íslandi, Kanada, Noregi, Rússlandi og Svíþjóð.