28 apríl 2026
Ríki og borg semja um stórfellda uppbyggingu íbúða - 1.200-1.400 nýjar íbúðir byggðar á ríkislóðum
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, kynntu í dag stórfellda íbúðauppbyggingu á ríkislóðum og í ríkiseignum í Reykjavík. Byggðar verða 1.200-1.400 nýjar íbúðir á næstu árum á lóðum ríkisins og í húsnæði í eigu ríkisins sem breytt verður í íbúðir.