12 ágúst 2025
Fyrstu langtímasamningarnir um liðskiptaaðgerðir og fleiri skurðaðgerðir
Sjúkratryggingar Íslands, Klíníkin Ármúla ehf. og Stoðkerfi ehf. í samstarfi við Læknahúsið DEA Medica hafa gert með sér samning um framkvæmd liðskipta-, bak-, kviðsjár-, og brjóstaminnkunaraðgerða með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga til næstu þriggja ára. Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og forsvarsmenn þjónustuveitenda staðfestu samninginn í höfuðstöðvum SÍ í dag.…