20 ágúst 2025
Menningarnótt: málverkafalsanir, Lína langsokkur, æsilegar afhjúpanir og lummuát
Menningarnótt verður haldin hátíðleg um alla borg og ættu allir að geta fundið sér fjölda viðburða við hæfi. Hvort sem áhugasviðið er málverkafalsanir, glíma, hiphopp, heilsusamlegt líferni eða lummuát eftir hestferð um tún Þjóðminjasafnsins – þá er víst að engum þarf að leiðast á laugardaginn í Reykjavík.