31 janúar 2025
Verðbólgumæling í janúar hagfelldari en búist var við
Fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í ríkisstjórn í dag greiningu ráðuneytisins á verðbólgumælingu fyrir janúarmánuð, sem Hagstofan birti í gær. Verðbólga í janúar hjaðnaði í 4,6% úr 4,8% í desember, en almennt gerðu greiningaraðilar ekki ráð fyrir hjöðnun verðbólgu milli mánaða.