02 febrúar 2026
Öruggara Ísland: Heildstæð stefna og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi
Dómsmálaráðherra kynnti í morgun nýja stefnu og aðgerðir stjórnvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi á fjölmennum morgunverðarfundi. Stefnan, sem ber heitið Öruggara Ísland, er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og markar tímamót í baráttu stjórnvalda gegn einni alvarlegustu ógn sem steðjar að almannaöryggi.