11 september 2024
Breytingar á örorkulífeyriskerfinu og hækkun á almennu frítekjumarki ellilífeyris
Nýtt örorkulífeyriskerfi tekur gildi þann 1. september 2025. Kostnaður vegna breytinganna er á ársgrundvelli 18,1 milljarður króna en 4,4 milljarðar koma inn árið 2025 samkvæmt frumvarpi til fjárlaga sem birt var í gær. Aukin fjárframlög til örorkulífeyriskerfisins eru að mestu til komin vegna hærri greiðslna til örorkulífeyrisþega en um 95% þeirra munu fá hærri greiðslur í nýja kerfinu.