05 mars 2026
Fjölmennt á Landssamráðsfundi gegn ofbeldi
Um 400 manns sátu landssamráðsfund gegn ofbeldi og afleiðingum þess sem félags- og húsnæðismálaráðuneytið og ríkislögreglustjóri boðuðu til á Hilton Reykjavík Nordica í gær, miðvikudag. Þá fylgdust um 1.300 manns jafnframt með í streymi. Markmið fundarins var að efla samráð og þverfaglegt samstarf gegn ofbeldi á Íslandi, með sérstaka áherslu á draga úr ítrekuðu ofbeldi.