03 nóvember 2014
Samkomulag um stofnun öndvegisseturs um sjálfbæra nýtingu og vernd hafsins
<p>Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði á föstudag samkomulag um stofnun öndvegisseturs um sjálfbæra nýtingu og vernd hafsins. Um er að ræða samstarfsvettvang fyrirtækja, háskólasamfélagsins, rannsóknastofnana og stjórnvalda um rannsóknir, þróun, framleiðslu og kynningu á tæknilausnum sem stuðla að vernd hafsins.</p>