04 júní 2026
1362/2026. Úrskurður frá 4. júní 2026
Kæru í málinu var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem ljóst þótti að óskað væri aðgangs að gögnum í stjórnsýslumáli sem kærandi ætti aðild að, sbr. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Kæranda var leiðbeint um að stjórnvaldsákvarðanir sem teknar væru á grundvelli skipulagslaga sættu kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.